Dobra
28.04.2007 19:32:28 / dobra

..

 

Já.. ég hef nú lengi ætlað að blogg hérna en ég hætti alltaf við, því ég veit ekki hvað ég á að segja. Ég áhvað samt að blogga stutt blogg núna. 

Elín sagði hérna í síðasta bloggi að allt væri svo voðalega frábært hjá henni og hún væri að rústa ma, já ég vildi að ég gæti sagt það sama. Ég held samt að ég sé ekkert að fara falla í ma en mér gæti nú alveg gengið betur, en já það þíðir þá ekkert annað nema vera dugleg að læra :)

Allar stelpurnar eru í Reykjavík, þær fóru á föstudaginn og voru að keppa. Þær nátturlega rústuðu þessu og lentu í 2 sæti. Til hamingju með það stelpur ;*

Já, það er fullt að fólki núna í rvk, menningarferð hjá Ma. Þannig ætli stelpurnar skemmti sér ekki bara mjög vel.

Þessi vika í skólanum er búin að vera frekar skrítin, fullt að gera og fullt af prófum en það er líka búið að vera kostningar og fullt af fríium. Fríin voru fín en ekki get ég sagt það sama um prófin. En jújú þetta gékk allt ágætlega.

Já annars hef ég lítið í fréttum svo ég ætla hafa þetta stutt.

-Berglind

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 19:40:20 / dobra

Góðu skapi:)

Já, ég ákvað að blogga. Ég er í svo góðu skapi.

Ég er að rústa MA núna. Búin með Bettý, Min ven Thomas og Dust. Lærði líka í stæ, geri aðrir betur.

Ég var að laga til í herberginu mínu. Ef e-r finnur rykkorn þar fær sá hinn sami fundarverðlaun:) 

Ég er búin að vera í fríi sem var gott. Endalaust tjill með stelpunum bara.

Var að klára páskaeggið mitt, ætla mér svo að byrja í nammibindindi!

Fór á Palla á sunnudaginn. Skemmti mér vel, takk fyrir kvöldið everyones:*

Í gær var skemmtilegt kvöld. Fór á Mr. Bean og grenjaði af hlátri. Fórum svo á rúntinn. Ég og Jana vorum eiginlega illa asnalegar. Fórum líka í draugahús nokkur saman. Ég er svo stolt af mér, ég fór inní húsið!:D

Systir mín fermist næstu helgi, mamma ætlar að blæða á mig klippingu í tilefni þess, virkilega kominn tími á það!

Það er líka söngvakeppni næstu helgi, það verður vonandi gaman :)

Rokk á ykkur öll :D hehe þið skiljið,

Elín Inga í góðu skapi oog

komment gleðja mig enn meira:)



 


» 20 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 09:47:49 / dobra

Páskafrí

Halló :D

Heyrðu við ætlum að byrja aftur, dobra sko. Það hefur vottað fyrir söknuði á þessari síðu, hún á einhvern veginn smá hluta í mér:D haha fyndið samt.

Það er allavega komið páskafrí, sem er gott. Við í dobra erum líka svo reglulega "busy women" þannig að við höfum ekki tíma í bloggerí þegar skóli og æfingar eru annars vegar. Annars gengur bæði vel í skólanum og á æfingum hjá mér núna, mínus stærðfræði:( Ég hlaut lægstu einkunn skólagöngu minnar á síðasta prófi og fór að skæla! Nei djók, en ég var hálf grenjandi samt og þarf nú að sækja aukatíma í þessari ágætu námsgrein. Síðan þurfum við að staðfesta hvaða braut við ætlum á strax eftir páska, ég get eiginlega ekki ákveðið mig hvort ég á að velja náttúrufræði A- eða B línu. Erfið ákvörðun sko, afhverju er ég alltaf í svona miklum vafa með allt?

Annað vafaatriði. Ég hef sótt um vinnu á 2 stöðum í sumar, ef ég fengi báðar - hvernig á ég þá að velja? Eftir laununum, vinnutímanum, hvort er sennilega skemmtilegra? Ohh, ég kem mér alltaf í vandræði.

En það sem er að frétta er mest lítið. Dobra crewið(ekki hallærislegt! haha) er búið að dreifa sér um allt land undanfarið, Emma er búin að vera í stórborginni, Íris Ósk er á Djúpavogi með Valla, Berglind fór til Dalvíkur með Hauki og ég, Ólöf og Alma fórum í fyrradag í bústað sem er aðeins lengra en Ólafsfjörður.

Hahahaha, það skeði svo fyndin saga í þeirri ferð. Við ákáðum semsagt á Sunnudagskvöldið að skella okkur í bústaðinn til Önnu Sifjar[illa flottur bústaður:)] en þar voru einmitt hún og Kristín Arna :D Þetta var þvílíkt gaman, bara svona smá "road trip" og síðan fórum við í pottinn og höfðum það kósý. Síðan lögðum við af stað kl. 00:30 og vorum að tala um hvað væri frábært að við yrðum komnar heim kl. 01:30, snemma að sofa sko. En nei, við vorum rétt komnar inn í Dalvík þegar birtist þessi ljóta, illkvittna hraðahindrun. Við að sjálfsögðu hægðum vel á okkur en þegar við fórum á hana heyrðist e-ð viðbjóðslegt hljóð. Við dóum úr hræðslu og stukkum út en dóum svo úr hlátri þegar við sáum að bíllinn hallaði þvílíkt! Dekkið sprungið svo við þurftum að sækja varadekkið. En nei, skottið var bilað, það var ekki hægt að opna það! Þannig að við settum sætin niður og náðum dekkinu út á ótrúlegan hátt. Varadekkið var gult á litinn og um 2cm á breidd:D Við hlógum svo mikið að maðurinn í næsta húsi vaknaði og kom út á einhverjum risa trukk með kösturum og risa tjakk tilbúinn til bjargar. Þegar hann var að fara að tjakka bílinn upp tilkynnti hann okkur að dekkið væri ekki sprungið :D hahaha við bara haaaa? Og já, bíllinn var bilaður, við bara wtf? Ýttum bílnum upp á e-ð bílastæði, sem var fyndið því að við þurftum að ýta bílnum upp e-a brekku :D Síðan hringdum við í Hauk og Berglindi og báðum þau að sækja okkur á Dalvík en þau bara "vá hvað þið eruð fyndnar, er ennþá 1.apríl?" og voru sko ekki til í að bruna til Dalvíkur, bíddu ha? Dalvík rokkar :D  En síðan komu Steffý og Biggi og Biggi fór á löggustöðina að athuga hvort löggan gæti ekki veitt smá aðstoð. En nei, það var lokað hjá löggunni. Halló! Hvernig getur verið lokað hjá löggunni? En anyways við fengum á endanum Hauk og Berglindi til að sækja okkur, sem betur fer. Ég hefði ekki viljað sofa í bílnum á Dalvík. Það var nóg að hanga þar í rúma klukkustund:D haha. Við komumst semsagt heim klukkan 3 á sunnudagsnóttina, og bíllinn kom heim í gær :D æji, þetta var bara fyndið. Vil þakka manninum með tjakkinn, Bigga og Steffý og síðast en ekki síst Hauki og Berglindi fyrir hjálpina á þessu örlagaríka kvöldi :D


Anna Sif, Alma og Kristín sætar í bústaðnum og já, ég og Ólöf vorum líka með :D

Langar að minna ykkur á að það eru góðir tímar framundan:

Hef heyrt af 16 ára balli næstu helgi(veit ekki hvort það sé satt),

söngvakeppnin helgina þar á eftir,

kannski suður helgina þar á eftir? Hvað segiði um það girls?

og stelpur, síðan erum við að fara að keppa sko :D við verðum!

Já, þetta er planið. Pottþétt plan:D haha

En þangað til næst,

takk fyrir mig,

Elín Inga


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 23:38:00 / dobra

****

Halló Halló

Jámm sit hérna heima, hef ekkert að gera svo ég áhvað að blogga eitt stikki blogg ;) já þessi vika hjá mér hefur einkennst af þreytu... eða kannski er það ekkert nýtt.
Reyndar já finnst mér alltaf vera helgi. ég bara skil þetta ekki. Á föstudögum er ég enn að velta því fyrir mér haaaa ? er föstudagur.. og síðan líður mér bara eins og það sé einn dagur og aftur helgi, ótrúlegt, já ég veit.
Ég held samt að heilasælurnar eða þetta drasl uppí heilanum á mér sé frekar seint að virka. Því þegar það er helgi þá er ég ekkert að fatta að það sé helgi, skiljiði ? nei ég held ekki en skiptir ekki máli :D

Já síðan er ég að spá í að skella mér suður um helgina og ég held að það séu bara þó nokkrar í dobra að fara suður, éééééég og íris og emma og alma eða allavega síðast þegar ég vissi.
jájá það verður rosa stuð !

annars er lítið að frétta.... svo ég kem kannski með nýtt blogg eftir helgina?? já eða kannski ekki .. ég sé til ;)

-Berglind


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 20:03:31 / dobra

..

góðann og blessaðann daginn ! 
jæjjjaaa....

það nennir greinilega enginn að blogga hjá okkur, við erum nú að verða frekar slappar í þessu, ég verð nú að viðurkenna það.

Erum við orðnar svoooona latar að það nennir engin af okkur að blogga lengur?

en jæjja það er nú málið að ég veit ekkert um hvað ég á að blogga, það er nú lítið sem ekkert búið að gerast, svo ætli þetta verði ekki eins og öll hin bloggin hjá mér... bara tilgangslaus, um ekki neitt bara e-ð bull 

Já en jújú svolitið merkilegt hér. Ég skrapp útí sveit með Ölmu áðan, rosa gaman ! Ég nátturulega gat ekki setið kjurr mér hlakkaði svo til að hitta hundinn. Ég og hundurinn, bestu vinir ;) já eða svona næstum því hehe

Ég er að fara í íslensku próf á morgun, og ætti eiginlega að vera lesa einhverja sögu, flóres saga og blankiflúr, mögnuð saga ! nenni engann veigin að byrja að læra....

Annars er voða fátt að frétta af mér...

en ólöf við bíðum ennþá eftir bloggi  =O

                                                           -Berglind



» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 10:30:34 / dobra

29, jan ;)

hún á afmæli í dag
hún á afmæli í dag
hún á afmæli hún alma
hún á afmæli í dag ;)

 

Til hamingju með afmælið og bílprófið Alma mín ;**

ALMA SÆTA ;)


hehe þessi varð bara að fylgja ;D

-Berglind


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 14:09:59 / dobra

fiinally

Celebrities

Já kominn tími á blogg? Ég er ekki frá því - ef þetta er rétt reiknað hjá mér er rúmur mánuður frá nýjustu færslu! Afsökun: það er búið að vera brjálað að gera í próftíð! Þessi próftíð í MA er hreinasta martröð og fer henni sem betur fer senn að ljúka:)

Þetta blogg mun vera í formlegri kantinum einfaldlega í tilefni af því að á morgun er síðasta prófið okkar, íslenska. Vil nýta tækifærið og óska öllum góðs gengis í því.

Helgin var nokkuð ágæt miðað við að enn er eitt próf framundan:

Föstudagskvöld var rólegt. Gerði mér lítið fyrir og las Dauðarósir spjaldanna á milli í annað sinn á stuttum tíma. Góð bók og kertaljós, ágætt kvöld :D

Á laugardagskvöldið fór ég ásamt Ölmu, Emmu og Ólöfu á Hagkaupsstaffa(ahh, sletta)grímuball. Stelpurnar komu til mín, við smelltum nokkrum myndum og héldum svo galvaskar niður á Capone þar sem var alveg dúndrandi stemning, right? Eftir smástund þar fóru Ólöf og Emma heim að læra? haha neii, allavega stöldruðum ég og Alma við þar stutta stund í viðbót, dönsuðum aðeins en fórum svo á rúntinn með Heiðu Berglindi, Örnu og Heiðdísi. Snemma heim og vaknaði kl. hálf 10 í morgun og byrjaði að læra! Dugnaður?

Að lokum langar mig að deila með ykkur gleðitíðindum næstu viku hjá okkur:

Mánudagur 22. janúar: Gleði hjá MA-ingunum, síðasta próf! Líka gleði hjá Ölmu þegar hún hefur lokið við að rúlla upp verklega bílprófinu :)

Þriðjudagur 23 janúar: Ólöf bóklegt bílpróf og mun hún klárlega ná því í fyrstu tilraun ;)

Miðvikudagur 24. janúar: Ólöf 17 ára!

Föstudagur 26. janúar: Ég í Reykjavík að versla, stelpurnar að skemmta sér hér heima :)

Laugardagur 27. janúar: Ég á leið til Ítalíu, Eyrún og Vala á leið til Austurríkis :) veii

Sunnudagur 28. janúar: Ég í einhverjum rosa brettagarði á Madonna!

Mánudagur 29. janúar: Alma Ósk 17 ára og eflaust munu einhverjir sjá hana bruna um bæinn á "pöddunni" haha.

Góða vika;)

Komnar myndir frá grímuballinu!

Heilræði eftir próftíð: Gangið hægt um gleðinnar dyr:)

-Elín Inga.


» 13 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 17:45:33 / dobra

jólin:P

jább loksins er MA komin í jólafrí :D vá það er æði að vera komin í jólafrí !
Það eru 4 dagar í jólin !!!! vá ég bara get ekki beðið :D
Já það er bara búið að vera frekar mikið að gera hjá mér svo ég hef ekki haft tíma til að gera jólakort =/ en ég kannski reyni að gera nokkur :D En allavega til að tryggja þetta ;)

Kæru vinir :D

Gleðilega jól og farsælt komandi ár,
Þakka fyrir það liðna og
vonandi hafið þið það sem allra
best um jólin dúllurnar mínar ;**

Jólakveðja,                                   Holidays

Berglind


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 13:58:23 / almaosk

Nú getið þið trútt um talað ;D

Jáá blessaðann og góðann daginn! Ég bið að heylsa ykkur á þessum drottins dýrðar degi! jáá það er 11 desmeber í dag! veit ekki hvort það segjir ykkur mikið en það þíðir mikið fyrir mig því kanski jáá kanski á ég eftir að muna eftir þessum degi næstu 1-2-3 árin eða ekki lengur ;D júúú því í dag eða áðan keypti ég mér minn fyrsta bíl ;D Ég keypti hann nákvæmlega 13:07 ;D en jáá vonandi geta flestir samgleðst mér! btw keypti ég mér hann alveg sjálf svo ástandið hjá mér núna er stundum kallað að vera á kúpunni! hehe en það á eftir að lagast með timanum ;D
En jáá ég var hjá tannlækni áðan og ég á vist að fara í einhverja aðgerð 1. ferbrúar eignlega strax eða fljótlega eftir að ég er búin að fá bílprófið ;S
En svo ég haldi áfram með fréttir þá erum við Ólöf að fara í Ö2 á eftir ;D og reyna að klára þetta bóklega dóterí ;D En jáá Ólöf við eigum eftir að rúlla þessu öllu upp ;D hehe eða við höldum i vonina ;D .. jáá svo á ég eftir að fara kaupa fullt af jólagjöfum.. best að fara drífa í því;D og gera jólakort;P .. En jáá annars bíð ég bara átekta eftir jólonum ;D .. En yes yes þetta er að fara koma mjög gott hjá mér í bili ;D

En smá spurningar sem þið megið endilega svara ;D

1. Hvað kallarðu mig?
2. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?
3. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?
4. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?
5. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
6. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
7. Hvernig stelpa er ég, og hvaða týpu flokkarðu mig?
8.Hefurðu öfundað mig? Hvers vegna?
9. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?
10. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
11. Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
12. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?

13. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
14. Hvernig stráka fíla ég?
15. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
16. Hvað er mest einkennandi við mig?
17. Hvaða búðir elska ég að fara í?




Vekja þessar myndir ekki upp einhverjar yndislegar mynningar ? ;D




Hehehehe Jaanaa ?? ;D


Þetta var gaman ;D 29 maí fyrsta útileigan ;D
eftir samrændu ;D!


Alma og Elín um Versló [Laugardagskvöld] ...


Alma og Berglind [Sunnudagsmorgun]
hahaha ;D Hresstt

Þessi er síðan í bústaðnum .. Berglind gerði
góða tilraun til að byggja upp brennu! hehe
Góð Begga ;D

En þá tók Alma til sinna ráða
með hjálð aðstoðamanna og byggði
þessa fyrirmyndabrenna en Berglind
sat hjá ;D hahah

Eldsteikktir borgarar ? ;D haha
...og kanski smáá kvörn af
Kryddi ;D !



ooo váá þetta er best ;D (L)


Takk Takk Alma Ósk


» 11 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 23:28:00 / almaosk

Jólafrí á morgun ;D

jáá hvaða hvaða hvaða það mað nú bara segja það að ég sé nú í talsvert góðu skapi núna ;D
Jább ég er komin í jólafrí á morgun þegar ég er búin í enskuprófinu! eins og velkunnir nákomendur mínir vita er ég með þessa gríðalegu ensku kunnáttu! hehe neii kanski ekki alveg en vonandi á maður eftir að fara létt með þetta próf á morgun. En eftir prófin fer ég svo að vinna minn í Bónus! jáá allt að gerast e-h núna en svo ér ég bara komin í soddan e-h jólajóla skap ;D sem er ótrúlega gaman;D en jáá svo fer maður að fara að fara að versla inn jólagjafir fyrir síðustu aurana þar sem ég er að fara í stórfjárfestingu eftir helgina eða stóra og ekki stóra það má metast um það! Allarvegana þá stærstu sem ég hef komið nálægt;D ! En já svo ég segi nú meira frá sjálfum mér er ég að núna að fara byrja að taka seinni ökutímana og fara svo í Ö2 ;D Ólöf ertu ekki til í að fara í bóklega á sama tíma og ég svo mér eigi nú öruglega ekki eftir að leiðast eithvað ósköp? ;D  En jájá en ég verð nú að vera hreynskilin og kenna í brjóst um ykkur MA-inga að þurfa að vera svoma lamgt fram að jólum!
En ætla að segja þetta gott núna;)Takk fyri mig Alma Ósk

» 9 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 14:30:59 / dobra

..

blogg ? já held það !

jæjjjaaa ég er búin að vera veik síðustu daga en ég er að hressast svo þetta er allt í góðu.
En já elin commentaði eitthvað að það yrði einhver að blogga og ætli ég sjái ekki mest um þessi tilgangslausu, leiðinlegu blogg sem skipta ekki neinu máli og eru helst ekki um neitt og enginn nennir að lesa. Eina gagnið að það kemur nýtt ,,blogg,, á síðuna :D

jæjja ef ég á byrja þetta blogg mitt

já satt að segja veit ég bara ekkert hvað ég ætla að segja svo

En einmitt það er föstudagur í dag og vááááá hvað vikan er búin að líða hratt =/ allavega er ég að fara í klippingu og litun á laugardaginn,. Síðan verður ,,ljós,, vika í næstuviku og á föstudaginn verður við orðnar obboðslega sætar á leið á árshátíð MA ;)

skemmtilegt það ! en jújú fyrsti í aðventu á sunnudaginn:D:D svo það er kominn skreitingar tími hjá mér :D kannski ég fari að kveikja á seríunni sem er í herberginu mínu, sem er reyndar búin að hanga þar allt árið en það er annað mál :D ég sá engann tilgang með að taka hana niður eftir síðustu jól, það væri bara bras að setja hana upp þau næstu ;)

allavega er að drífa mig ! svo ég kveð í bili ;)
verið þæg krakkar mínir og gerið ekkert sem ég myndi ekki gera ;)

-Berglind

» 8 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 17:33:41 / dobra

Let it snow...

Seasons

jæjja ég varð nú að koma með eitt blogg :D aðalega útaf veðrinu :D
Það er komið fullt af snjó og mér líst bara mjög vel á þaðen ég vil samt fá meiri snjó :D helst að ég verði veðurteft heima.

Seasons

Annars bara fínn skóladagur í dag.
byrjuðum í lífsleikni og við áttum að æfa einhverja dansa þannig við getum dansaði eitthvað á árshátiðinni. Eftir litla stund kom dönskukennarinn sem var að kenna á hæðinni fyrir neðan og hvartaði undann háfaða svo allir skelltu sér bara niðrí kvos og við vorum að æfa dans þar ! Við vorum eins og fífl þegar allir voru frammi á gangi en annars vorum við Íris mjög liprar í þessu. Vorum samt kannski frekar mikið að klessa á fólk, en ég meina það skaðar eingann :D
Síðan gerðist nú eitthvað meira í skólanum en nenni ekki að vera tuða um það ...

já krakkar mínir það stittist í jólin, sumir eru byrjaðir að skreyta, kannski frekar snemmt, en það er alltaf  gaman að sjá jólaljós :D:D:D
Ég held samt að ég fari ekki í jólafrí fyrr en 20 desember eða eitthvað =/ en æjji það er allt í lagi :D 
Annars hef ég lítið meira að segja þannig....

Seasons

-Berglind


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 11:21:37 / almaosk

Would you dance if I asked you to dance? Would you run and never look back?



Góðan daginn ætla að skella inn einu bloggi hérna í morgunsárið. Í morgun svaf ég Því miður yfir mig en hringdi í pabba og bað hann að skutla mer til að fara í annan tíma, en þegar ég kem i skolann sé ég að það er ekki tími og svo á ég að vera í eyðu eftir þennan tíma svo ég fór bara heim með strætó en éh hefði eki þurft að mæta í skolannm fyrr ern 13:15! En í Strætó áðan þá fóru ég , Harpa, Helgi, Jónas og Bjössi inn í hann í einu og strætóbílstjórinn leit ofan í miðakassan og snar stoppaði og bara hver setti rauðan miða ofaní? engin af okkur setti rauðan miða ofan í svo við sögðum lítið og hann bara þá farið þið öll út ef enginn viðurkennir þetta! Helgi bauðpst til að setja annan grænann skóla miða í staðinn fyrir hinn þó að hann hafi ekki verið með hann! Já langaði að deila þessu með ykkur því mér fannst þetta svo ótrúlega ansalegt! En í gær fór ég með Berglindi og Evu á Morfís kvöldið í VMA, en Ólöf, Elín og Anna Sigf voru þarna líka. Þar sem MA var með hátíðum en VMA á móti þeim. En eftir keppnina skutlaði pabbi hennar Berglindar okkur niður í Glerárskóla þar sem var verið að halda upp árshátíðina. En það var soltið skrítið að koma þarna. En samt mjög gaman! Allar stelpunar í 10 bekk
voru allar ótr  úlega sætar og fínar!
�rsh�ti� 2006 125�rsh�ti� 2006 088

hér eru myndir af okkur síðan á árshátíðinni okkar!

En helgin? mm er að fara vinna alla helgina og það er búið að spá ógeðslegu veðri og sínist mér það vera að fara byrja að krafti!

En ætla að segja þetta gott að blogginu en um daginn las ég í Morgunblaðinu ljóð og langar að setja það hingað innná.

Kynlíf og dauði

Komdu í gengum mig
gegnum dýnuna undir okkur
gólfið
komdu í gengum gólfið
gegnum loftið
gegnum hæðina fyrir neðan
gegnum gólfið og loftið
gegnum kjallarann gengum gólfið
gegnum jarðlögin
jarðlag eftir jarðlag
gegnum moldina gegnum grjótið
gröfnu líkin
og komdum aftur
uppum jarðlögin, grjótið, moldina, gröfnu, líkin,
gólfin, hæðirnar, loftin, dýnuna
og þú kemur í gengum mig aftanfrá

Plastfætur glenntir til austurs og vesturs
þrái marbletti ör þrái
og þá er þó ekkert til einskins kona
í fínflauelskjól hrækji og veit
vil þungan málm þjáist
bráðna saman við steinsteypu
steingráa gluggalausa hlið
austurbæjaskóla iðnskóla
verkfræðivit framhaldslíf

vil sólgula rót undir svörtu hári
sem feykjist festist og klístrast
líkgrænan háls magran
og langan leðufrakka sem flakast í roki
þrái þá er eithvað eftir stúlka

í andvara liðast skollitað hár húðin ung myrði og veit
húðin ung en inní því eithvað slímugt og bólgnar
þrýstir og kvelur og þjáist og veit

þrái að spíta smími og lifir
einsog eithvað sem enginn hefur séð
eithvað sem enginn veit en hefur
eithvað sem allir hata og hafa eithvað sem enginn skilur
og allir hata að leka og drjúpa

raða litlum borðum um hægindastóla
um mjúkt hold vafið um ekkert
lakkspreyjað ljónshöfuð undir grisjur um ekkert
öll röðum við litlum borðum um hægindastóla

svartar fléttur engar fjaðrir svartir hanskar
skór leður mintugrænt vatt um búkin; snjógalli
sú svarta lá á bakinu
níðstöng með höfði jésúss við höfuðlagið
presturinn togaði í rennilásinn skurðaðgerð svartir dílar

komdu á mig annars sker ég á þennan háls í sundur
hann er ungur þessi háls komdu annars skemr ég
það verður þér að kenna ég sker
komdu annars sker ég og sker gat
í andrúmsloftir opna rifu í loftið
hann sker allt þessi hnífur
förum gengum rifuna komdu með mér gegnum gatið
komdu í gatið

Sjaldgæfur vökvi í lítilli krukku í innanávasa og glóir
við hjarta þitt þú ert engu líkt
bjarg mér frá þessu ekkert kom hvað sem þú ert
ólöglegt óskiljanlegt sem nálgast yfir flötinn
margarma kona verður blátt fílshöfuð
verður stytta af maríu mey verður ekkert

karlmaður grætur í felum
felustaðurinn kista úr viði sem flæðir
ofaní henni sagt úr biblíusögu

mótmæli skynsemi hæðni lífsvisku
mótmæla á innsoginu afturábak heima hjá sér
mótmæli:

ber eld að boru
útglenntir sóðalegri jaskaðri merkingarlausri
og bíð eftir eldi bíð

satan grætur tjöru
heilagur api leitar lúsa
í hári mínu fíngerða ljósu finnur ekkert

komdu án þín er ekkert
komdu á mig slími inní mig
hjá mér inní mig framhjá mér
því án þess er ég ekkert nema þurr hola
gapandi svört merkingarlaus hola

verslunin var björt einsog dauðinn
ég skein einsog kúpa í moldu og keypti mér rúllur
rúllur með hári með kjöti með bómul með leggjum af dúkku
keypti salt til að meiða holdið mitt unga
alþakið örum ég rþái
það er svolítis virði
meiri sársauki í mín sár

sá mann sem var strengdur á pramma
holdmjúkur snjáður
munnurinn galopinn kvikur
og blaffraði sænskur fáni við stöng
tilli með örmjóum æðum og sinum
lítill og harður á mjólk minna brjósta

mótmæli:
mótmæla borðum og stólum
mótmæla grátandi stinga hönd í slím
tala afturábak á innsogi
mótmæla tei í teppum ilmböðum

hata spúa eitri inní springa mótmæla

litlar litríkar spennur á borði
litlar litríkar spennur og dúa um hægindastólan ekkert

í þessum heimi sæki lítið kjötstykki í glerborð
ber það heim
og steiki og treð
öll troðum við
ekkert þurfum við en troðum og býsnumt
þráum og viljum
og það er svolítis virði

Eftir Kristínu Eiríksdóttir


Jáá vonandi hafið þið þolinmæði í að lesa þetta allt en mér finnst þetta flott ljóð! endilega segjið ykkar skoðun.


takk fyrir Alma Ósk.










» 7 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 11:02:40 / dobra

veðurteftar?

                                                                                                   Clothes



Elín og Emma alveg eeldhressar veðurteftar í RVK?

já Emma átti pantað flug norður kl. 9:30 en nei.. það er alltof mikill vindur:S Ég keyri hins vegar bara norður þegar það er hætt að vera 34 m/sek á Holtavörðuheiði!

Okey kids þetta er ömurlegt. Það gekk svoo vel að keyra suður, utan við að við keyrðum næstum því á "úlf", eða Emma heldur því fram að það hafi verið úlfur.

Helgin hljómaði einhvernveginn svona:

Föstudagur

Byrjuðum daginn á því að fara í sund. Hressandi það. Síðan var verslað og verslað og verslað, tókum Kringluna og Smáralindina þann daginn. Um kvöldið borðuðum við indverskan mat, það var örugglega ekki langt í að það kviknaði eldur í munninum á okkur:) Síðan komu Eyrún og Vala og sóttu okkur og við fórum í heimsókn til þeirra á hótelið og svo tókum við nokkra Laugara, sáum meðal annars handtöku :D haha og róninn ullaði á lögguna:) flottuur

Laugardagur

Við vöknuðum snemma og fórum í nýja IKEA - eruði ekki að grínast vá hvað þetta er stórt! Þið sem hafið ekki komið þarna þá er þetta 4x stærra en gamla og það var ekki lítið;) Þar keyptum við okkur spegla, Emma voða sniðug keypti svona sem maður pússlar saman en ég keypti einhvern pínu stóran sem komst varla í bílinn:S Því næst tókum við Laugarveginn og versluðum aðeins meira. Síðan fórum við aftur í Kringluna og fundum okkur báðar kjól fyrir árshátíðina:D ánægðar með það. Síðan fór Emma í heimsókn til frænku sinnar en ég fór í heimsókn til Dídíar. Síðan fórum við "heim" og tókum okkur til. Eyrún, Vala og Örn sóttu okkur og við fórum út að borða á Ítalíu - mmm það var svo góður matur! Við gátum varla labbað út við vorum svo södd en ákváðum samt eftir smástund að kaupa okkur ís. Á leiðinni sáum við bílslys:O Eftir ísinn fórum ég, Emma, Vala og Örn í keilu en Eyrún sótti Heiðu og Ingu. Örn vann okkar keilu og líka þegar hann keppti við Eyrúnu, Ingu og Heiðu. Bowlingmaster! Síðan keyrði Eyrún mig og Emmu heim og að sjálfsögðu var farinn einn Laugari:D

Sunnudagur

Við sitjum hérna að bíða eftir nógu góðu veðri til að komast heim. Búnar að eyða ansi miklu svo að ég held að hvorug okkar sé í stuði til að versla meir :Shehe

En erum hættar að tuða,

sjáums vonandi bráðum:)

ClothesClothes


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 19:35:29 / dobra

...

ég ætlaði nú ekki að segja mikið .. bara láta vita að ég væri á lífi og segja að ég væri komin í vetrarfrííííí :D:D:D:D:D

                                   kv.Berglind


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10